Hvetja til trjáklippinga
![street-219709_1280](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/12/street-219709_1280.jpg?resize=620%2C264)
Umhverfissvið Reykjanesbæjar hvetur garðeigendur til að huga að umhirðu garða sinna og þá sérstaklega til að halda gróðri innan lóðarmarka.
Í byggingarreglugerð nr.112/2012 er sú skylda lögð á garðeigendur að halda gróðri innan lóðarmarka og hvetur Reykjanesbær garðeigendur til að klippa tré sín og runna svo þau hindri ekki för vegfarenda, skyggi á umferðarskilti eða dragi úr götulýsingu.
Hvað þarf að passa?
- Gangandi og hjólandi vegfarendur eiga að hafa greiða leið um göngustíga.
- Gróður má ekki skyggja á umferðarmerki.
- Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
- Gróður sem vex yfir göngustíg má ekki vera lægri en 2,8 metrar svo hjólreiðafólk og snjóruðningstæki komist leiðar sinnar.
- Gróður sem vex yfir akstursbraut má ekki vera lægri en 4,2 metrar svo sorphirðu- og snjóruðningstæki komist leiðar sinnar.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingu á framfæri geta haft samband við Umhverfismiðstöð í síma 420 3200 eða sent ábendingu í gegnum ábendingargátt.
![](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2020/10/trjagrodur-vid-lodamork1.jpg)