Nýjast á Local Suðurnes

Heimsóknir bannaðar um óákveðinn tíma

Frá og með deginum í dag, 29. október, og um óákveðinn tíma, eru heimsóknir á sjúkradeild HSS (D-deild) og Víðihlíð ekki leyfðar, sökum fjölgunar Covid-smita í samfélaginu, meðal annars hjá viðkvæmari hópum.

Aðstandendur sjúklinga/íbúa eru hvattir til að nýta sér rafrænar lausnir til að eiga samskipti við sína nánustu og hafa samband við starfsfólk deildanna ef með þarf. Tækjabúnaður er til staðar á HSS fyrir þá sem þess þurfa, eftir höfðinglegar gjafir til stofnunarinnar síðasta vor.

frá þessu er greint á Facebook-síðu HSS.