Indriði mætti á fund bæjarráðs: “Ég er alveg að verða brjálaður á þessu!”
![Untitled design (44)](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/08/Untitled-design-44.png?resize=620%2C264)
Einn helsti tuðari landsins, Fóstbræðrahugarfóstrið Indriði mætti á fund bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun og lét í sér heyra – Indriði var þó ekki mættur á fundinn í eigin persónu, heldur mætti einn af fulltrúum bæjarráðs með Indriða-hnappinn svokallaða, en með því að ýta á hnappinn heyrast frasar hins skapstygga Indriða úr Fóstbræðraþáttunum.
Að sjálfsögðu var “heimsókn” Indriða tekin upp á myndband sem sjá má hér fyrir neðan, auk atriðis úr þáttunum vinsælu.