Nýjast á Local Suðurnes

Greiddi 200 þúsund krónur fyrir falsað vegabréf

Þrír aðilar voru stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um helgina þar sem þeir höfðu framvísað fölsuðum vegabréfum eða skilríkjum í eigu annarra. Einn þeirra kvaðst hafa keypt vegabréfið sem hann var með í fórum sínum fyrir sem svarar 200 þúsund íslenskum krónum.

Þá var annar aðili með breytifalsað kennivottorð, að sögn lögreglu og hinn þriði framvísaði vegabréfi sem hafði verið tilkynnt stolið.