Nýjast á Local Suðurnes

Uppsagnir og sparnaðaraðgerðir hjá Isavia

Isavia hefur gripið til uppsagna á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brotthvarfs Wow-air. Um er að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.

Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og til viðbótar býðst 15 starfsmönnum lægra starfshlutfall. Áður hafði verið dregið úr sumarráðningum hjá Isavia ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia, þar á meðal til skrifstofustarfa.

Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs Wow air í mars síðastliðnum. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif. Umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, því er óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða.