Nýjast á Local Suðurnes

Íbúum fjölgar í Vogum – Mögulegt að lóðum verði úthlutað á miðbæjarsvæði

Samkvæmt nýjustu tölum telur íbúafjöldinn í Vogum á Vatnsleysuströnd nú 1.175 manns, en í upphafi árs 2015 voru 1.102 íbúar í Vogum. Íbúar svæðisins voru 1.231 í upphafi árs 2008 en fór töluvert fækkandi allt til ársins 2015, íbúum í Vogum hefur því fjölgað um 6 prósent á tveimur árum.

Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum segir í samtali við Viðskiptablaðið að mikil eftirspurn sé eftir íbúðarhúsnæði á svæðinu þessar mundir. Þegar hafi verið rætt um að hefja undirbúning á miðbæjarsvæðinu, þar sem gert sé ráð fyrir talsverðum fjölda íbúða, og ekki útilokað að á næsta ári verði unnt að hefja úthlutun lóða á því svæði.

Þá hyggst Ísaga ehf. reisa súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á lóð við Heiðarholt, sem fyrirtækið fékk úthlutað á dögunum. Hjá fyrirtækinu starfa um 30 manns, og hefur Ísaga skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis að starfsemi félagsins muni á næstu árum flytjast í Voga.