Nýjast á Local Suðurnes

Vetur í Reykjanesbæ – Allar upplýsingar um tómstundastarf á einum stað

Vefurinn Vetur í Reykjanesbæ, sem er af sama meiði og Sumar í Reykjanesbæ, hefur verið settur í loftið.  Á vefnum eru yfirlit og margvíslegar upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarfsemi í Reykjanesbæ fyrir allan aldur.

Vefurinn er mjög aðgengilegur og notendavænn og er á slóðinni https://vetur.rnb.is. Bæði er hægt að skoða lista yfir námskeið í heild sinni eða velja ákveðinn aldurshóp og þrengja þannig leitina.

Vefurinn er sívirkur og því er alltaf hægt að bæta við námskeiðum, sefir í tilkynningu frá Reykjanesbæ, upplýsingar sendist á netfangið tomstundafulltrui@reykjanesbaer.is