Nýjast á Local Suðurnes

Slasaðist við að tengja uppþvottavél

Karlmaður slasaðist á dögunum þegar hann var að reyna að tengja uppþvottavél, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

Maðurinn var að athafna sig undir vaski þegar leiðsla sprakk svo hann fékk yfir sig sjóðandi heitt vatn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á HSS.