Drónar fundust á Keflavíkurflugvelli

Að minnsta kosti tveir drónar hafa fundist innan flugverndarsvæðis Keflavíkurflugvallar undanfarin misseri. Samkvæmt heimildum Suðurnes.net sáust flygildin þó ekki á flugi við völlinn heldur fundust á jörðu niðri af starfsfólki flugvallarins.
Samkvæmt reglum um dróna sem Samgöngustofa hefur gefið út er óheimilt að fljúga þeim innan tiltekinna fjarlægða frá svæðamörkum flugvallar án leyfis frá rekstraraðila flugvallarins. Þó segir í reglunum að ekki þurfi sérstakt leyfi ef aðeins er flogið neðar en hæstu mannvirki í nágrenni flugferils drónans. Þá er þess getið í reglunum að nálægðartakmarkanir séu tveir kílómetrar við alþjóðaflugvelli en 1,5 km við aðra áætlunarflugvelli.
Ekki er langt síða fresta eða aflýsa þurfti öllu flugi um Gatwick flugvöll í London vegna dróna sem sveimaði yfir vellinum í rúman sólarhring. Það atvik hafði meðal annars áhrif á flug til Íslands.
Flugumferðarstjórar á Keflavíkurflugvelli eru með viðbragðsáætlun til staðar ef sést til dróna nálægt flugvellinum og segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia hvert atvik vera metið út frá atburðum og öryggissjónarmiðum.
„Ef það verður vart við dróna á flugi nálægt flugvellinum er byrjað á því að láta flugstjóra um borð í þeim vélum sem eru á leiðinni til Keflavíkur vita um að það hafi sést til dróna í nálægð við flugvöllinn. Síðan er haft samband við lögreglu og það tilkynnt,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við Morgunblaðið.
Eftir það fer fram mat innanhús hjá Isavia með yfirmönnum í flugumferðastjórninni á þeim viðbrögðum sem þarf að grípa til út frá öryggissjónarmiðum, en á meðal þess sem metið er er hvort beina flugvélum eitthvað annað eða mögulega að grípa til annara aðgerða eins og að loka brautum.