Nýjast á Local Suðurnes

Óbreytt fasteignagjöld og útsvarsprósenta í Reykjanesbæ

Engin hækkun verður á tímagjaldi í leikskóla, gjöldum frístundaskóla, áskrift skólamáltíðar eða sundferðum barna um áramót. Flestar hækkanir í gjaldskrá Reykjanesbæjar árið 2016 eru samkvæmt hækkun vísitölu.

Stærstu breytingarnar í gjaldskrá Reykjanesbæjar árið 2016 er gjaldtaka í Duus safnahús sem verða í samræmi við aðgangseyri Rokksafns Íslands, þ.e. 1500 krónur fyrir almenning, 1200 fyrir eldri borgara og öryrkja og frítt fyrir börn 16 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Frá áramótum þarf að greiða sérstakt gjald fyrir heimsenda máltíð, gjaldtaka heimaþjónustu er nú tekjutengd, stakur miði í sund hækkar um 150 krónur, fer úr 550 krónum í 700 krónur. Gjöld í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hækka umfram vísitölu til að nálgast gjaldtöku annarra sveitarfélaga. Aðrar hækkanir eru samkvæmt þróun vísitölu.

Fasteignagjöld og útsvarsprósenta verða óbreytt.

Sjá gjaldskrá 2016 í heild sinni hér.