Opna tvo Dunkin Donuts á Suðurnesjum á næstu vikum
Tveir nýir Dunkin Donuts staðir verða opnaðir hér á landi á næstu vikum, í Fitjum í Reykjanesbæ og í komusal flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
„Á flugvellinum verður staðurinn hluti af verslun 10-11, svipuð hugmynd og í Hlíðasmára,“ segir Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri Dunkin Donuts á Íslandi í samtali við mbl.is. Á Fitjum verður 10-11 búð þar minnkuð og gert pláss fyrir Dunkin Donuts. Sá staður verður stærri en á flugvellinum með góðri sætisaðstöðu að sögn Sigurðar. Þar verður líka opnaður heilsustaðurinn Ginger sem er þegar inni í verslun 10-11 í Ármúla. Bæði Ginger og Dunkin Donuts hér á landi eru í eigu 10-11.
Sigurður segir stefnt að því að opna staðinn á Fitjum um miðjan mánuðinn en á flugvellinum í lok mánaðar eða byrjun september.