Nýjast á Local Suðurnes

Tvítugar konur stöðvaðar við kókaínsmygl

Tvær franskar konur sitja nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla rúmlega 400 grömmum af kókaíni til landsins.  Konurnar komu með flugi frá London í lok maí, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Tollverðir grunuðu þær um græsku þegar í flugstöðina var komið, stöðvuðu þær og höfðu samband við lögregluna á Suðurnesjum. Stúlkurnar voru handteknar og færðar til rannsóknar. Önnur þeirra reyndist hafa hluta efnanna innvortis en hin hafði komið þeim fyrir utan á líkama sínum.  Þær eru báðar í kringum tvítugt að aldri. Rannsókn málsins er á lokastigi.