Nýjast á Local Suðurnes

Áætlun vegna mats á umhverfisáhrifum á stækkun Keflavíkurflugvallar í kynningu

Isavia hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum á stækkun Keflavíkurflugvallar. Frestur til að senda inn athugasemdir er til 25. janúar 2019.

Tillagan er aðgengileg hér og einnig hjá Skipulagsstofnun. Athugasemdir og viðbrögð Isavia við athugasemdum má finna hér. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. janúar 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is