Nýjast á Local Suðurnes

Ellefu ára börn fundu amfetamín

Tilkynning barst lögreglunni á Suðurnesjum nýverið þess efnis að ellefu ára börn hefðu fundið tvo poka með hvítu dufti utan dyra í umdæminu. Reyndist vera um meint amfetamín að ræða og var það afhent lögreglu.

Þá komu lögreglumenn sem voru við eftirlit auga á hóp pilta fyrir utan bifreið á vegslóða. Fát kom á piltana  þegar rætt var við þá og mikla kannabislykt lagði frá þeim. Þá komu lögreglumenn auga á logandi kannabisvindling í grasinu hjá þeim.

Piltarnir voru færðir til viðræðu á lögreglustöð. Haft var samband við forráðamenn þeirra og tilkynning send til barnaverndarnefndar.