Nýjast á Local Suðurnes

BYKO vill á Fitjar

Smáragarður ehf. hafa óskað eftir því við Reykjanesbæ að fá lóðunum að Fitjabraut 5 -7 úthlutað undir byggingarvöruverslun BYKO og mögulega aðra starfsemi sem fellur að þeim rekstri.

Náist samningar þar um er það ósk Smáragarðs að hefja þróun á reitnum sem fyrst í samráði við skipulagsyfirvöld bæjarins. Reiknað er með sameiningu lóðanna tveggja og byggingarreita.
Lóðarumsóknin var samþykkt af Umhverfissviði með fyrirvara um samþykki Reykjaneshafnar og afhendingarskilmála.