Nýjast á Local Suðurnes

Veita styrki í tengslum við Jólagarðinn

Reykjanesbær mun í ár hleypa af stokkunum nýju verkefni sem fengið hefur heitið Jólagarðurinn. Verkefnið mun leysi af hólmi tendrun ljósanna á vinabæjartrénu frá Kristiansand en nú hefur formlegt vinabæjarsamstarf verið aflagt. 

Í tengslum við Jólagarðinn gefst áhugasömum kostur á að sækja um styrki til viðburða eða verkefna á aðventunni. Verkefnin gætu t.d. verið uppákomur eða afþreying í Jólagarðinum og geta styrkirnir hentað vel félagasamtökum í fjáröflun eða öðrum þeim sem vilja hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd.

Hægt verður að sækja um styrki á vef Reykjanesbæjar frá 10.-20.nóvember og eru allir sem luma á skemmtilegum hugmyndum hvattir til að sækja um.