Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla kölluð til eftir árekstur – Báðir ökumenn töldu sig vera í rétti

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tvær bifreiðir skullu saman við gatnamót Vatnsleysustrandarvegar og Stóru – Vatnsleysuvegar. Engin umferðarmerki eru við umrædd gatnamót og töldu báðir bílstjórarnir sig vera í rétti. Bifreiðirnar skemmdust mikið og var dráttarbíll fenginn á vettvang til fjarlægja þær. Ökumennirnir sem voru einir í bílunum hlutu ekki alvarleg meiðsl.

Þá hafnaði bifreið á varnarvír milli akreina eftir að ökumaður inn hafði misst stjórn á henni á hringtorgi hjá Fitjum.

Önnur umferðaróhöpp voru minni háttar og engin slys urðu á fólki.