Nýjast á Local Suðurnes

Hlaut annars stigs bruna á hendi eftir að heimagerður flugeldur sprakk

Unglingspiltur slasaðist á hendi á nýárskvöld þegar heimagerður flugeldur sprakk í hendi hans.  Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist hann hafa hlotið annars stigs bruna.

Fleiri heimagerðar sprengjur reyndust vera til staðar og komu aðstandendur piltsins þeim á lögreglustöðina í Keflavík. Landhelgisgæslan sá svo um að eyða þeim. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um málið vegna ungs aldurs piltsins.