Nýjast á Local Suðurnes

Reynsluboltar til United Silicon – Unnið að því að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðar

Stjórnin United Silicon hefur fengið Kristinn Bjarnason hrl. til ráðgjafar fyrir félagið, en Kristinn er einn reyndasti lögmaður landsins í störfum fyrir fyrirtæki í greiðslustöðvun og nauðasamningsumleitunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en þar kemur einnig fram að á næstu mánuðum verði unnið að því að endurskipuleggja reksturinn til að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðar með áherslu á að tryggja hagsmuni kröfuhafa félagsins, starfsfólks þess og hag sveitarfélagsins af tekjum af rekstri félagsins. Hluti þess verkefnis er að tryggja félaginu fjármagn til að ráðast í allar nauðsynlegar úrbætur til að bæta rekstur verksmiðju félagsins.

Þá hefur fyrirtækið einnig ráðið til sín nýjann talsmann, en Karen Kjartansdóttur mun sinna því hlutverki næstu mánuði, en hún hefur meðal annars starfað sem samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Tilkynning United Silicon í heild sinni:

Stjórn félagsins vinnur nú hörðum höndum að endurskipulagningu rekstrar félagsins í samvinnu við kröfuhafa þess. Fjárhagserfiðleikar félagsins eru fyrst og fremst afleiðing rekstrarerfiðleika í verksmiðju félagsins sem rekja má til endurtekinna bilana í búnaði og valdið hafa félaginu miklu tjóni. Á greiðslustöðvunartíma verður því líka unnið að frekari greiningum á tæknilegum úrlausnarefnum, áætlunum um úrbætur og nauðsynlegum endurbótum.

Heimsmarkaðsverð á kísilmálmi fer hækkandi og spurn eftir kísilmálmi eykst. Framtíðarhorfur rekstrarins eru því góðar, að því tilskyldu að takist að endurskipuleggja reksturinn og fjármagna nauðsynlegar endurbætur.

Í bréfi Umhverfisstofnunar (UST) frá 1. september var félaginu tilkynnt um þá niðurstöðu UST að endurræsing ofns verksmiðjunnar sé óheimil nema með skriflegri heimild frá stofnuninni að loknum fullnægjandi endurbótum og ítarlegu mati á þeim.

Stjórn félagsins tekur alvarlega þá miklu ábyrgð sem fylgir því að reka starfsemi sem þessa og vill gera það í góðri sátt við nærsamfélagið og eftirlitsaðila og í samræmi við ákvæði laga og starfsleyfis. Stjórn félagsins mun á næstu mánuðum vinna að endurskipulagningu rekstrar til að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðar. Í því samhengi leggur stjórnin áherslu á að tryggja hagsmuni kröfuhafa félagsins, starfsfólks þess og hag sveitarfélagsins af tekjum af rekstri félagsins. Hluti þess verkefnis er að tryggja félaginu fjármagn til að ráðast í allar nauðsynlegar úrbætur til að bæta rekstur verksmiðju félagsins.

Áður hafði United Silicon í svörum til UST veitt upplýsingar um fjölmörg úrbótaverkefni sem ætlunin er að ráðast í á greiðslustöðvunartíma. Ákvörðun UST kallar á enn frekari greiningu á mögulegum úrbótum og tímasetta áætlun um þær. Multiconcult er norsk ráðgjafarverkfræðistofa í fremstu röð á Norðurlöndum og hefur unnið með félaginu frá því síðasta vor og mun halda áfram að vera lykilráðgjafi félagsins í endurbótaferli næstu mánaða. Multiconsult fékk Norsku loftgæða­rann­sókna­stofn­un­ina (NILU) til liðs  til að rannsaka og greina útblástur frá verksmiðjunni og mun það starf halda áfram.

Stjórn félagsins vinnur auk þess að því að styrkja innviði félagsins og gerir ekki ráð fyrir að koma þurfi til uppsagna starfsfólks. Hluti þess mun vinna að endurbótum á vinnustaðnum auk þess sem kapp verður lagt á að nota næstu þrjá mánuði til að styrkja starfsfólk í störfum sínum með því að auka þjálfun og fræðslu á meðan hefðbundin verkefni liggja niðri. Mannauður félagsins er lykilatriði til að tryggja framtíðarrekstur verksmiðjunnar.

Stjórnin hefur ennfremur fengið Karen Kjartansdóttur til að sinna hlutverki talsmanns fyrirtækisins næstu mánuði. Hún hefur mikla reynslu af fjölmiðlum, var samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á árunum 2013-2016 og hefur á þessu ári unnið á ráðgjafastofunni Aton. Þá hefur stjórnin fengið Kristinn Bjarnason hrl. til ráðgjafar fyrir félagið.  Kristinn er einn reyndasti lögmaður landsins í störfum fyrir fyrirtæki í greiðslustöðvun og nauðasamningsumleitunum.