Nýjast á Local Suðurnes

Arnór B. Vilbergsson hlaut Menningarverðlaun Reykjanesbæjar

Arnór B. Vilbergsson hlaut Menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súluna. Verðlaunin hlaut Arnór fyrir framlag sitt til tónlistarlífs í Reykjanesbæ. Verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfélagsins og var þetta í tuttugasta sinn sem Súlan var afhent. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabet Ásberg.

Arnór hefur stjórnað mörgum metnaðarfullum verkefnum með Kór Keflavíkurkirkju, má þar nefna Jólaoratoríu Saints Saens og Requiem eftir Gabriel Fauré sem og verk  utan hefðbundins tónleikahalds, U2 messu árið 2010, Jesus Christ Superstar árið 2013 og vorið 2017 verður flutt Queen messa.  Hann hefur einnig verið tónlistarstjóri tónlistarsýningarinnar Með blik í auga sem sett hefur verið upp á Ljósanótt í Reykjanesbæ frá árinu 2010 og er einn af skipuleggjendum tónleikaraðarinnar Söngvaskáld á Suðurnesjum þar sem fjallað er um tónlistararf Suðurnesjamanna.  Eins hefur hann staðið að hinum svokölluðu „Hjólbörutónleikum“  með þeim Kjartani Má og Elmari Þór. Nú stjórnar hann þremur kórum í bænum, Kór Keflavíkurkirkju, Eldey kór eldri borgara og ungmennakórnum Vox Felix.

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson afhenti Arnóri verðlaunin. Við sama tækifæri var styrktar- og stuðningsaðilum Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar  Reykjanesbæjar, sem nú var haldin var í sautjánda sinn, þakkaður stuðningurinn.