Nýjast á Local Suðurnes

Vilja viðræður við KSÍ um þjóðarleikvang

Fulltrúr Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar lögðu fram bókun þess efnis að hafnar verði viðræður við KSÍ um byggingu þjóðarleikvangs í sveitarfélaginu.

Í máli Sjálfstæðismanna kom fram að Reykjanesbær gæti lagt fram landsvæði og uppbygging orðið í samvinnu við einkaaðila.

Bókunin í heild:

„Reykjanesbær þarf að setja upp metnaðarfulla langtímaáætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja og setja fram tímasettan aðgerðalista þannig að farið sé eftir áætluninni.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að bæjarstjóra verði falið að leitast eftir viðræðum við KSÍ um byggingu þjóðarknattspyrnuleikvangs í Reykjanesbæ, en nú eru nokkur önnur bæjarfélög á höttunum eftir að fá þessa höll til sín. Reykjanesbær gæti lagt fram landsvæði og uppbygging orðið í samvinnu við einkaaðila. Mikill kostur er að hafa slíkan þjóðarleikvang nálægt alþjóðaflugvelli.

Þjóðarknattspyrnuleikvöllur mun styðja við íþróttastarf í Reykjanesbæ. Mikilvægt er að vinna þannig til framtíðar og að við stöndum undir nafni sem íþróttabær.“