Nýjast á Local Suðurnes

Hafna endurupptöku þrátt fyrir tilmæli Umboðsmanns Alþingis

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur ákveðið að taka ekki mál vegna byggingar við Selás í Ásahverfi í Reykjanesbæ aftur til meðferðar, en framkvæmdir við byggingu hússins hafa verið stopp í um tvö ár eftir að í ljós kom að byggingin stendur tæpum meter of hátt miðað við skipulag hverfisins.

Umboðsmaður Alþingis hafði beint þeim tilmælum til úrskurðarnefndarinnar að hún tæki málið upp á ný.

Málið hefur verið í gangi í kerfinu í langan tíma og voru framkvæmdir við byggingu hússins stöðvaðar með ákvörðun byggingafulltrúa í desember árið 2019, en ekkert hefur verið unnið við bygginguna síðan þá. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúa með úrskurði í júní á síðasta ári. Í úrskurði nefndarinnar, sem skoða má í heild hér, kemur meðal annars fram að svo virðist sem mistök af hálfu beggja aðila virðast hafa valdið því að málið sé komið í þennan farveg, þannig hafi byggingarfulltrúi samþykkt uppdrætti sem gerðu ráð fyrir að húsið væri rúmum meter hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir, eða 7,62 m á hæð í stað 6,3 metrar frá gólfplötu, þ.e. að gólfkótinn væri 13,20 og hæsti kóti 20,82. Þeir uppdrættir voru hins vegar ekki áritaðir af löggiltum hönnuði og því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og áritun þeirra ekki lögum samkvæmt, segir meðal annars í úrskurðinum.

Sem fyrr segir var erindi eiganda hússins um hækkun hafnað í kjölfar grenndarkynningar, þar sem athugasemdir bárust frá íbúum við sömu götu. Í fylgigögnum með grenndarkynningunni má þó sjá að í nokkrum tilvikum virðist sem farið hafi verið á svig við gildandi deiliskipulag í hverfinu, en bent er á nokkrar byggingar hvar hæð húsa og þakgerð er ekki í samræmi við skipulagið auk þess sem húsagerðum hafi verið breytt, úr tveggja hæða í einnar hæðar, þannig að lóðir hafi verið hækkaðar um allt að þrjá metra. Þá kemur fram í umsögn íbúa við götuna að ítrekað hafi verið bent á misræmi í hæðum og að leysa hefði mátt úr málinu með auðveldum hætti á fyrri stigum.

Í úrskurði  Umboðsmanns Alþingis segir meðal annars:

„Í málinu lá fyrir að hæð hússins var í samræmi við byggingarleyfi sem A hafði fengið útgefið og þá uppdrætti sem byggingarfulltrúinn hafði upphaflega samþykkt. Umboðsmaður benti á að byggingarfulltrúa væri við ákveðnar aðstæður rétt að stöðva framkvæmdir tímabundið á meðan rannsakað væri hvort byggingarleyfi yrði fellt niður eða afturkallað. Þrátt fyrir það yrði ekki annað ráðið af rökstuðningi ákvörðunar hans um stöðvun framkvæmda en að hún hefði byggst á því að hæð hússins væri ekki í samræmi við skipulagsskilmála og uppfærða uppdrætti hússins. Að þessu leyti hefði aftur á móti ekkert komið fram um að byggingarfulltrúi hefði eftir stöðvun framkvæmdanna hafið undirbúning að ákvörðun um niðurfellingu eða afturköllun byggingarleyfisins.“