Nýjast á Local Suðurnes

Leggja 250.000 króna dagsektir á Laugafisk

Heilbrigðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hefur ákveðið að leggja 250 þúsund króna dagsektir á Laugafisk ehf. á Reykjanesi frá og með 15. febrúar síðastliðnum.

Þar af eru 50.000 kr. dagsektir fyrir að stunda heitloftsþurrkun fiskafurða á iðnaðarsvæðinu á Reykjanesi án starfsleyfis eða bráðabirgðaheimldar frá Umhverfisstofnun og 200.000 kr. dagsektir fyrir óleyfislosun fráveitu frá starfsstöð fyrirtækisins á iðnaðarsvæðinu á Reykjanes í jarðlög.