Nýjast á Local Suðurnes

Geta ekki sofið vegna hávaða – “Ég brjálast!”

Íbúar í nokkrum fjölbýlishúsum á Ásbrú hafa kvarta hástöfum undan hávaða, hávaðanum er lýst sem “stöðugu banki” sem stendur yfir í marga klukkutíma. Íbúar hafa átt erfitt með svefn undanfarin misseri vegna þessa, segir í umræðum um málið í hópi íbúa Ásbrúar á Facebook.

Í umræðunum kemur fram að líklega sé um að ræða hávaða frá búnaði sem verkamenn sem sinna viðhaldi á fjölbýlishúsunum nýta við störf sín. Í umræðunum kemur einnig fram að ítrekaðar kvartanir til Heimavalla, stærsta leigufélags landsins, eiganda húsanna hafi ekki skilað nokkrum árangri.

Nokkrir aðilar segjast lítið sem ekkert hafa getað sofið vegna hávaðans “Er búin að reyna að sofna í Fokkin 3 tíma. Er veik og er svo þreytt! Langar að sofa en þetta bank sko!” Segir einn íbúinn og annar bætir við: “Ólord, ef þetta heldur áfram þá klifra èg sjálf uppá þak og sker þetta niður”