Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær lýkur endurfjármögnun á 8, 4 milljarða skuld

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Reykjanesbær hefur með lánum frá Lánasjóði sveitarfélaga lokið endurfjármögnun á skuld sinni við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR). Skuldin við LSR var um 8,4 milljarðar króna til 25 ára og bar 4,2% vexti auk verðtryggingar. 

Ljóst er að tekist hefur að lækka vexti umtalsvert og þar með fjármagnskostnað sveitarfélagsins næstu 15 árin, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Áður hefur komið fram að fjármagnskostnaður Reykjanesbæjar muni lækka um allt að 300 milljónir króna á ári við þessa framkvæmd.