Nýjast á Local Suðurnes

Stefnt að byggingu 87 íbúða við Hafnargötu – Skapa á lifandi og skemmtilegt miðbæjarsvæði

JeES arkitektar hafa lagt fram tillögu að nýju miðbæjarskipulagi fyrir svæði milli Hafnargötu og Suðurgötu í Reykjanesbæ. Markmið tillögunar er að skapa lifandi og skemmtilegt miðbæjarsvæði í hjarta bæjarins. 

Samkvæmt tillögunni, sem enn er í vinnslu og sjá má á myndbandi hér, er áætlað að bæta við allt að 87 nýjum íbúðum á svæðinu. Nái tillagan fram að ganga munu flesta íbúðirnar bætast við á svæðinu við Hafnargötu 52-56, eða rúmlega 40. Þá munu á þriðja tug íbúða bætast við á Suðurgötu.