Nýjast á Local Suðurnes

Vilja setja upp verkferla vakni grunur um sölu eða neyslu fíkniefna í grunnskólum

Barnaverndarnefnd Reykjanesbæjar leggur til að sviðsstjóri fræðslusviðs og teymisstjóri barnaverndar taki til skoðunar að setja upp verkferla ef grunur vaknar um fíkniefnasölu og/eða neyslu í skólum í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að verkferlanir gildi fyrir alla skóla í Reykjanesbæ.

Mælt er með að slíkt verði unnið í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Verkferlar verði svo lagðir fyrir fund barnaverndarnefndar þegar þeir eru tilbúnir og taki gildi eigi síðar en 1. janúar 2022 og fyrr ef hægt er.

Meðal annars verði skoðað:

• Tiltæk viðbrögð og úrræði
• Hvaða viðbrögð, úrræði og stuðningur þurfa að vera til staðar
• Fyrirkomulag forvarna
• Samstarf heimila og skóla

Ef upp koma slík mál í skólum okkar er nauðsynlegt að bregðast við á viðeigandi hátt, segir í fundargerð nefndarinnar og að nauðsynlegt sé að þessir hlutir verði ræddir á mannamáli, hvað skal varast og hvað skal til bragðs taka ef nemendur, starfsmenn skóla eða aðrir verða vitni að sölu og/eða neyslu fíkniefna á skólalóð. Sérstaklega er tekið fram að Barnaverndarnefnd hafi áhyggjur af unga fólkinu okkar.

Mjög mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn séu upplýstir svo hægt sé að taka samtalið heima og vera meðvitaður um stöðuna, fræða börnin okkar um hættuna og halda umræðunni gangandi til þess að vera vakandi í nærumhverfi barnsins, segir einnig í fundargerðinni.

Með þessu vill barnaverndarnefnd árétta að ein af megináherslum í stefnu Reykjanesbæjar er Börnin mikilvægust. Í því felst að styðja börn svo þau blómstri í fjölskyldunni, skólum, íþróttum og tómstundum til að auka kraft samfélagsins.