Nýjast á Local Suðurnes

Gult í kortunum með kvöldinu

Mynd: Björgunarsveitin Þorbjörn

Veður­stof­an hef­ur enn á ný gefið út gul­ar viðvar­an­ir, þar á meðal fyrir Suðurnesjasvæðið.

Viðvaranir gilda frá klukkan 18 fyr­ir höfuðborg­ar­svæðið, Suður­land, Faxa­flóa, Breiðafjörð og Vest­f­irði.

Mik­illi öldu­hæð er jafn­framt spáð á miðunum suðvest­ur- og vest­ur af land­inu, allt að 18 metr­um. Þetta hef­ur áhrif á tvö spásvæði, Faxa­flóa og Suður­land. Reikna má með að öldu­hæð við strönd­ina nái 10-12 metr­um og hún nái há­marki á mánu­dags­kvöld. Bú­ist er við að ástandið vari fram á þriðju­dag.

Spáð er suðvest­an 13 til 20 metr­um á sek­úndu og tal­verðum élj­um. Viðbúið er að hvass­ara verði í élja­hryðjum og gætu vind­hviður farið yfir 35 metra á sek­úndu staðbundið. Skafrenn­ing­ur verður og aukn­ar lík­ur á eld­ing­um. Lík­ur eru á sam­göngu­trufl­un­um og foktjóni, að því er kem­ur fram á vef Veður­stof­unn­ar.