Nýjast á Local Suðurnes

Seinkun á skólastarfi vegna óveðurs

Röskun á skólahaldi í Reykjanesbæ á morgun mánudaginn 7. febrúar 2022 þar sem spáð er afar slæmu veðri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu, sem sjá má hér fyrir neðan:

Í ljósi þess að gefin hefur verið út rauð viðvörun fyrir okkar landssvæði í nótt og snemma í fyrramálið verður upphafi skólastarfs í leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar seinkað til kl. 10:00. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá skólunum ef frekari röskun verður á skólastarfi.

Þá hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja tilkynnt að fjarkennsla verði á morgun.

https://vedur.is/vidvaranir