Spá óveðri á miðvikudag – Reykjanesbrautin verður varasöm

Veðurstofan varar við óveðri á morgun, miðvikudag, búast má við að á milli klukkan 6 til 8 í fyrramálið verði á bilinu 30-35 m/s vindhraði í hviðum á Reykjanesbraut og varar Vegagerðin við því að aðstæður geti verið varasamar þegar vatn safnast í hjólför samfara hvassviðri þvert á veginn.
Gangi spáin eftir mun lægja flljótlega eftir hádegi, en hvessir allhressilega aftur síðdegis. Spáð er stormi eða roki annað kvöld. Þá verður suð- eða suðsuðaustanátt með mikilli rigningu um tíma.