Nýjast á Local Suðurnes

Ferðamaðurinn sofandi varð mjög skömmustulegur og baðst afsökunar

Íbúi á Suðurnesjum hafði samband við lögregluna í umdæminu snemma í morgun og greindi frá því að að í sófa í stofu sinni hvíldi óboðinn gestur sem hann kannaðist hreint ekkert við. Við eftirgrennslan reyndist sá þreytti vera kanadískur ferðamaður sem sagðist hafa verið að skemmta sér með félaga sínum í nótt og hefðu þeir síðan farið af skemmtistaðnum í heimahús, ásamt fleira fólki,  til að halda gleðskapnum áfram. Hann kvaðst ekki hafa hugmynd um hvernig hann hefði endað sofandi í þessu ókunnuga húsi.

sögn húsráðanda var ferðalangurinn mjög skömmustulegur og baðst afsökunar á athæfi sínu.

Þegar Kanadamaðurinn hafði beðist afsökunar var honum ekið á tjaldsvæðið í Reykjanesbæ, þar sem camper-bíllinn sem hann og vinir hans hafa á leigu hér á landi var lagður, og lauk þar með þessu súra næturævintýri hans hér á Íslandi.