Nýjast á Local Suðurnes

Brotist inn í gám með steypustyrktarjárni

Brotist var inn í gám í Keflavíkurhverfi Reykjanesbæjar og úr honum stolið verkfærum, slípirokk og nokkrum hleðsluborvélum.

Svo virðist sem lás á gámnum hafi verið spenntur upp með steypustyrktarjárni sem lá fyrir utan hann, segir í tilkynningu lögreglu. Stutt er síðan brotist var inn í annan gám í sama hverfi með sömu aðferð. Lásinn á þeim gám hafði einnig verið spenntur upp og úr honum hafði verið stolið steypuhrærara og handfræsara.