Nýjast á Local Suðurnes

Hvessir hressilega á fimmtudag

Búast má við sunnan hvassviðri eða stormi á morgun, fimmtudag og hefur Veðurstofan gefið út gular viðvaranir vegna þessa.

Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, en gert er ráð fyrir 18-25 m/s sunnanlands, en auk þess er spáð talsverðri eða mikilli rigningu, einkum sunnan- og vestantil á landinu.

Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám, segir í hugleiðingum veðurfræðings.