Nýjast á Local Suðurnes

Skýrist í september hvort Reykjanes Geopark fái vottun

Reykjanes Geopark sendi árið 2012 inn umsókn um að aðild að alþjóðlegum samtökum sem nefnast Global Geoparks Network. Samtökin eru samstarfsvettvangur Geoparka og eru þau studd af UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Stjórn Reykjanes Geopark skilaði í vikunni öllum þeim gögnum sem samtökin óskuðu eftir vegna umsóknarinnar. Umsóknin verður tekin fyrir á fundi þeirra í Rokua Geopark í Finnlandi í byrjun september. Þá mun skýrast hvort að Reykjanes Geopark fái þá vottun sem unnið hefur verið að undanfarin þrjú ár.

Í áfangaskýrslunni er svarað spurningum og ábendingum sem sérstaklega var beint til Reykjanes Geopark í lok árs 2013. Meðal þess sem unnið hefur verið að á þessum tíma er stjórnunaráætlun fyrir Reykjanes Geopark, aukinn sýnileiki Geoparksins í markaðefni fyrir svæðið, haldin hafa verið námskeið og fyrirlestrar um sérstöðu svæðisins auk þess sem skilgreindir hafa verið 55 áhugaverðir staðir út frá jarðvísindum, náttúrufræðum eða menningararfleið.

gestastofa duus

Gestastofa Reykjanes Jarðvangs er á meðal verkefna sem unnin hafa verið

Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Geoparkinn er samstarfsverkefni þessara sveitarfélaga og sex hagsmunaðila, þ.e. Ferðamálasamtaka Suðurnesja, Bláa lónsins, HS Orku, Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, Þekkingarseturs Suðurnesja auk Heklunnar – atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.

Áfangaskýrsluna má lesa hér