Nýjast á Local Suðurnes

Stormur og slæm færð á morgun

Vindaspá um hádegisbil á morgun þriðjudaginn 1. desember

Veður­stofa Íslands vek­ur at­hygli á mjög slæmri veður­spá fyr­ir morg­undag­inn, þar sem gert er ráð fyr­ir aust­an­stormi víða um land um miðjan dag. Færð verður mjög slæm og ekk­ert ferðaveður, seg­ir á vef Veður­stofnn­ar.

í at­huga­semd frá veður­fræðingi, segir að þar sem sam­an fara vind­ur og hiti und­ir frost­marki ásamt laus­um snjó megi gera ráð fyr­ir mikl­um skafrenn­ingi og þá mun snjóa að auki.

Spáin fyrir allt landið samkvæmt vef Veðurstofunnar er eftirfarandi:

Norðlæg átt, 5-13 m/s og víða él, en snjómugga um tíma SV-til, en lægir og rofar til í kvöld. Vaxandi austanátt í nótt, 15-25 og snjókoma eða skafrenningur um hádegi, hvassast við SV-ströndina. Mun hægari SV-átt og úrkomuminna S- og V-lands annað kvöld. Búist er við mikilli snjókomu og skafrenningi á höfðuborgarsvæðinu á morgun. Frost víða 1 til 8 stig, en hlánar við S-ströndina á morgun.