Veikindi og yfirvinnubann hafði áhrif á yfir 3000 farþega Icelandair
Öllu Ameríkuflugi Icelandair til landsins í morgun var seinkað vegna veikinda og yfirvinnubanns flugumferðastjóra, en ekkert áætlunarflug fór um Keflavíkurflugvöll frá klukkan 21 í gærkvöldi til klukkan 7 í morgun. Verkfallsaðgerðir flugumferðastjóra í nótt höfðu því áhrif á ferðalög 3000-3500 farþega flugfélagsins.
Þetta segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair í samtali við mbl.is, hann bætti svo við að flug ætti að verða komið í eðlilegt horf síðdegis.
„Ef allt gengur upp ætti flug að vera með eðlilegum hætti síðdegis,“ segir hann, en þá koma vélarnar frá Evrópu til baka áður en þær halda á ný vestur um haf.