Nýjast á Local Suðurnes

Heimila forkynningu á deiliskipulagi við Gróf – Myndir!

Nordic Office of Architecture hefur lagt fram uppdrætti að forkynningu á deiliskipulagi við Gróf, fyrir hönd Reykjanes Investment ehf. eiganda þróunarreits við smábátahöfnina.

Óskað er heimildar Reykjanesbæjar til að auglýsa forkynningu deiliskipulagsins og hefur Umhverfis- og skipulagsráð samþykkt þá tilhögun og er stefnt að forkynningu fyrir helstu hagaðila og almenning.