Nýjast á Local Suðurnes

Hefði getað farið verr þegar flugvél feykti gámi á vinnuvél

Verr hefði getað farið en raun varð á þegar flugvél tók af stað úr stæði á Keflavíkurflugvelli með þeim afleiðingum að gámur sem stóð nærri henni tókst á loft og hafnaði á dráttartæki.

Atvikið, sem átti sér stað í fyrradag,  varð með þeim hætti að flugvélinni átti að ýta úr stæði áður en hreyflar yrðu ræstir. Þess í stað fór vélin af stað undir eigin afli og var henni beygt til hægri með þeim afleiðingum að hreyflar hennar feyktu gáminum á vinnutækið. Hann hafði staðið milli  umræddrar vélar og fraktvélar áður  en hann tókst á loft. Má leiða líkur að því að hefði vinnutækið ekki verið staðsett milli vélanna hefði gámurinn hafnað á síðarnefndu vélinni.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið, sem gæti þó tekið tíma þar sem mikið er um veikindi hjá lögreglumönnum þessa stundina.