Nýjast á Local Suðurnes

Framkvæmt fyrir tæpan hálfan milljarð í Grindavík á næsta ári

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Samkvæmt fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar verður eignfærð fjárfesting fyrir árið 2016 um 455 milljónir króna. Þar má helst nefna fjölgun íbúða fyrir aldraða í Víðihlíð, fyrsta áfanga í endurnýjun á Miðgarði, hafist verður handa við hönnun og útboð á nýju íþróttahúsi og breytingar og stækkun á bæjarskrifstofunum.

Þá má nefna ýmislegt viðhald við gamla sundlaugarhúsið, þar á meða endurnýjun á suðurhlið, við  grunnskólann á Ásabraut, Laut, ýmsar lagfæringar á gangstéttum, lýsingu, áframhaldandi uppbygging göngu- og hjólastíga, og þá er talsverð gatnagerð. Einnig verður lögð áhersla á gróðursetningu og þá verður hafist handa við fyrsta áfanga á útikennslusvæði við Sjómannagarðinn, svo eitthvað sé nefnt. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkurbæjar.