Nýjast á Local Suðurnes

Breyta opnunartíma eftir ábendingu frá heilbrigðiseftirliti

Jarðvegslosunarstaður Reykjanesbæjar er staðsettur austan við Dalshverfi. Umgengi á svæðinu hefur reynst ábótarvant og það hafa komið ábendingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja að þarna sé úrgangi hent sem ekki á heima á þessu svæði og þarf því að fjarlægja með tilheyrandi kostnaði.

Þess vegna hefur reynst nauðsynlegt að setja upp læst hlið og bjóða upp á fastan opnunartíma. Opnunartímar verða framvegis frá 08:00 til 17:00 virka daga en laugardaga frá kl. 08:00 til 14:00.