Nýjast á Local Suðurnes

Íslandsmeistaratitlar til Grindavíkur og Reykjanesbæjar

Feðgarnir og Grindvíkingarnir, Guðjón Hauksson og Hörður Þór Guðjónsson urðu Íslandsmeistarar í tvímenning í pílukasti um helgina. Þá varð Kitta Einarsdóttir úr Pílufélagi Reykjanesbæjar Íslandsmeistari í kvennaflokki ásamt Ingibjörgu Magnúsdóttur úr Pílufélagi Hafnarfjarðar.

Feðgarnir Guðjón og Hörður lögðu félaga sína úr Grindavík, þá Matthías Örn Friðriksson og Björn Steinar Brynjólfsson 6-2 í úrslitaleiknum. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Harðar í 501 tvímenning en sjötti titill Guðjóns. Kitta Einarsdóttir var einnig að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 501 tvímenning.