Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarstjórnarfundur og úrslitaleikur í beinni

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mun því taka fjármál sveitarfélagsins fyrir á fundi sínum í dag klukkan 17, auk þess sem umræða um ársreikninga sveitarfélagsins mun fara fram. Fundir bæjarstjórnar eru sendir út í beinni útsendingu á vef bæjarins og því verður hægt að fylgjast með fundinum í dag hér. Þá hefur Hljóðbylgjan fm 101,2 sent fundi bæjarstjórnar út beint og á því verður engin breyting í dag.

Þá tryggðu Keflavíkurstúlkur sér sæti í úrslitaleik Lengjubikarsins með sigri á HK/Víking í undanúrslitum á laugardaginn. Úrslitaleikurinn gegn Haukum fer fram á heimavelli Hafnarfjarðarliðsins, Ásvöllum, í kvöld klukkan 19:30, leiknum verður lýst beint á Hljóðbylgjunni.