Nýjast á Local Suðurnes

Hundruð hylltu landsliðið við Reykjanesbraut – Ánægðir með móttökurnar

Þjálfarar landsliðsins í knattspyrnu, þeir Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson auk fyrirliðans, Arons Einars Gunnarssonar voru ánægðir með móttökurnar sem liðið fékk við komuna til landsins.

Allir þrír höfðu orð á því í viðtali við sjónvarpsmenn Skjás Sports að frábært hafi verið að sjá mannfjöldann sem safnaðist saman við Reykjanesbrautina, en nokkur hundruð manns mættu við veg­inn, frá Kefla­vík­ur­flug­velli að Fitjum og hyllti landsliðið þegar því var ekið til Reykja­vík­ur nú um klukkan sjö í dag.