Betsý Ásta sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
![stora-upplestrarkeppnin-2018_sigurvegarar](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2018/03/stora-upplestrarkeppnin-2018_sigurvegarar.jpg?resize=620%2C264)
Betsý Ásta Stefánsdóttir nemandi í Akurskóla sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór í Bergi Hljómahöll sl. miðvikudag. Í öðru sæti var Jón Arnar Birgisson nemandi í Holtaskóla og í þriðja sæti var Lovísa Grétarsdóttir nemandi í Njarðvíkurskóla
Stóra upplestrarkeppnin var nú haldin í 21. sinn á Suðurnesjum. Að venju var hátíðin hin glæsilegasta. Í bland við fallegan upplestur var boðið upp á hugljúfa tóna frá nemendum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Alls 14 nemendur úr 7. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og Sandgerðis tóku þátt í lokakeppninni. Fyrst lásu nemendur textabrot úr sögu eftir Sigrúnu Eldjárn og ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Að lokum lásu nemendur ljóð að eigin vali. Í dagskrálok flutti Helgi Arnarson sviðsstjóri ávarp og veitti öllum þátttakendum bókagjafir.