Nýjast á Local Suðurnes

Betsý Ásta sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Betsý Ásta Stefánsdóttir nemandi í Akurskóla sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór í Bergi Hljómahöll sl. miðvikudag. Í öðru sæti var Jón Arnar Birgisson nemandi í Holtaskóla og í þriðja sæti var Lovísa Grétarsdóttir nemandi í Njarðvíkurskóla

Stóra upplestrarkeppnin var nú haldin  í 21. sinn á Suðurnesjum. Að venju var hátíðin hin glæsilegasta. Í bland við fallegan upplestur var boðið upp á hugljúfa tóna frá nemendum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Alls 14 nemendur úr 7. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og Sandgerðis tóku þátt í lokakeppninni. Fyrst lásu nemendur textabrot úr sögu eftir Sigrúnu Eldjárn og ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Að lokum lásu nemendur ljóð að eigin vali. Í dagskrálok flutti Helgi Arnarson sviðsstjóri ávarp og veitti öllum þátttakendum bókagjafir.