Nýjast á Local Suðurnes

Þrír á vespu sem ekið var á bifreið

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Réttindalaus piltur er ók vespu, sem á sátu tveir piltar til viðbótar, gegn einstefnu í Keflavík um helgina endaði för sína og félaga sinna með því að aka á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Vespan sem pilturinn, sem er aðeins þrettán ára gamall ók, var án hraðatakmarka og jafnframt ótryggð. Piltarnir þrír sluppu ómeiddir svo og ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var á. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti atvikið til forráðamanna drengjanna og til barnaverndar.

Þá hafa rúmlega tuttugu ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Jafnframt voru höfð afskipti af allmörgum ökumanna vegna gruns um vímuefnaakstur eða önnur brot í umferðinni svo sem akstur án ökuréttinda. Af fjórum ökumönnum sem óku sviptir ökuréttindum var einn sem lögregla stöðvaði nú í þriðja sinn af þeim sökum.

Jafnframt voru skráningarnúmer fjarlægð af fimm bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.