Nýjast á Local Suðurnes

Enn eitt jafnteflið hjá Keflavík

Keflvíkingar eru enn í fjórða sæti Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu eftir 0-0 jafntefli gegn Selfossi á Jáverk-vellinum í kvöld. Þetta var sjöunda jafntefli Keflvíkinga í sumar, en liðið hefur unnið fimm leiki og tapað einum.

Heimamenn voru sterkari aðlilinn í fyrri hálfleik en Keflvíkingar fengu þó besta færið á 23. mínútu, þegar Sigurbergur Elísson brenndi af vítaspyrnu, eftir að knötturinn hafði farið í höndina á varnarmanni Selfyssinga.

Keflvíkingar sóttu nokkuð stíft í síðari hálfleik en inn vildi boltinn ekki og markalaust jafntefli verða að teljast sanngjörn úrslit í tíðindalitlum leik.