Senda sms-skilaboð vegna jarðskjálfta

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja sms-skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði vegna jarðskjálftanna sem hafnir eru á ný við Fagradalsfjall á Reykjanesi.
Í tilkynningu segir að þetta sé gert því eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara.
Komi til eldgoss verður textaskilaboðum breytt í beina aðvörun til þeirra sem eru á umræddu svæði. Ekki er hægt að útiloka að sms-skilaboðin berist til fólks aðeins utan við skilgreint svæði og er því almenningur beðinn um að hafa það í huga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum varar fólk við því að fara í göngu um gosstöðvarnar á meðan þessi óvissa ríkir.