Vilja gera grindvíska togara umhverfisvænni með nýrri tækni
![togari thorbjorn](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/togari-thorbjorn.jpg?resize=620%2C264)
Sigurvegarar Hnakkaþons, þau Guðjón Smári Guðmundsson, Ingi Svavarsson, Hjálmar Óskarsson, Margrét Lilja Hjaltadóttir og Hrönn Vilhjálmsdóttir hafa sett fram hugmyndir um hvernig gera má sjávarútvegsfyrirtækið Þorbjörn hf. í Grindavík að grænna fyrirtæki á grundvelli Parísarráðstefnunnar um loftslagsmál, þar sem teknar voru ákvarðanir um skref til lækkunar á losun gróðurhúsalofttegunda.
Hnakkaþon er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarúrvegi sem gerir nemendum HR kleift að taka þátt í samkeppni um lausn verkefna sem tengjast íslenskum sjávarútvegi.
Verkefni fimmmenninganna snýr að því að Þorbjörn hf. geti aukið rafmagnsnotkun á línubátum félagsins og togara, bæði á veiðum og við bryggju með því að nota rafmagn úr landi í stað ljósavéla. Að mati hópsins mun kostnaður við verkefnið, þ.e.a.s að koma upp þar til gerðum búnaði um borð í togara greiðast upp á hálfu öðru ári. Ávinningurinn er því bæði á hinu umhverfislega sviði og hinu efnahagslega.
Verðlaunin í Hnakkaþoni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi eru ekki af verri endanum, en sigurvegararnir halda til Boston á stærstu sjávarútvegssýningu heims í mars, í boði fyrrnefndra aðila.