Breytingar á strætó – Fækka ferðum og aka ekki um helgar
![straeto](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/12/straeto.jpg?resize=620%2C264)
Samkvæmt samkomubanni sem tók gildi 24. mars þá mega ekki fleiri en 20 manns koma saman. Þessi regla nær einnig til Strætó í Reykjanesbæ. Viðskiptavinir eru beðnir um að passa handþvott, halda tveggja metra fjarlægð og ferðast ekki með almenningssamgöngum ef flensu einkenni gera vart við sig.
Breyting á tímatöflu:
Frá og með 1. Apríl næstkomandi verður ekið samkvæmt almennri tímatöflu (30 mín.) frá 07.30 til 14:30 en ekið samkvæmt tímatöflu laugardags eftir það frá 14:30 til 18:00. (60 mín. tíðni).
- Ekki verður ekið á laugardögum eða sunnudögum.
- Breyting þessi er tímabundin um mun vara þar til samkomubanni verður aflétt.
- Allar ábendingar berist á straeto@reykjansebaer.is